Alex (2000) er samtíma málari og teiknari frá Reykjavík. Í málverkinu fjallar hann um form og fleti sem hann mótar í landslög og hversdagslega hluti á leikræna vegu. Hann hugsar um þunga í fletum og það að búa til sterka myndbyggingu sem einkennist þó af jafnvægi og hnitmiðuðu flæði innan myndarinnar.

Hvernig myndin er upp sett ásamt samsetningu lita stjórnar tilfinningunni í verkinu. Hann notar viðfangsefni verkanna til að kanna tengingu fólks við umhverfið sitt, sjálfan sig og aðra. Um að vera til innan umhverfis. Að vera til innan hugmynda sem móta okkar umhverfi og okkur sjálf. Verk Alex eru oft ljóðræn en jafnframt beinskeytt.

Teikningar hans eru yfirleitt pólitískar. Hann hefur teiknað margar beittar pólitískar myndasögur, plaggöt, stuttar teiknimyndir og annað efni til að styrkja menningarlega og pólitíska andspyrnu og baráttur jaðarhópa. Hann vill aðeins að mannréttindi fólks séu tryggð alls staðar, að fólk geti átt gott líf og haldið mannlegri reisn sinni. Að fólk sé frjálst frá kúgun og ofbeldi. Að ríkjandi valdakerfi hrynji og að annað betra taki við.